laugardagur, 04 september 2010 | Heim


Herjólfur fyljar vel
žrišjudagur, 27 jślķ 2010

Þann 21.júlí sl. lauk fyrra gangmáli hjá Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum, þá voru liðnar 5 vikur síðan merarnar komu í hólfið. Sónaðar voru 30 merar frá honum og reyndust 26 merar vera með fyli. Nokkrar aðrar merar sem komu seinna í hólfið voru ekki sónaðar, við eru bara mjög ánægð með þennan árangur hjá okkar manni (hesti) Seinna gangmálið hófst sama dag um kvöldið, mættu þá enn fleiri drottningar til hans, úff ! það verður nóg að gera hjá kallinum eitthvað fram á haustið. Mynd: Herjólfur í Flagbjarnarholti, að reka merar saman í hólfinu.

 

 

 

 
Aršur frį Brautarholti, seinna gangmįl
mįnudagur, 26 jślķ 2010

Arður er á leiðinni suður í Sandhólaferju frá Tryggva Björnssyni á Blöndósi, en þar var hann í góðu yfirlæti með hóp hryssa frá Húnvetningum ofl. Arður er í mjög góðu standi og mega Sunnlendingar eiga von á honum í góðu formi í hólfinu í Sandhólaferju hjá Guðmari og Jakobínu . Seinna gangmál hefst á þiðjudaginn 27.júlí n.k. Enn eru nokkur pláss laus í seinna gangmálið og auðvelt að bæta inná Arð í hólfið ef með þarf. Nánari uppl. gefur Helgi Jón s : 893-2233 og Snorri s : 861-6325.

 
Herjólfur-seinna gangmįl.
fimmtudagur, 15 jślķ 2010

 

Seinna gangmál hefst miðvikudaginn 21.júlí n.k.. Hryssueigendur sem eiga pláss á seinna-gangmáli skulu mæta með hryssur sínar í Flagbjarnarholt miðvikudaginn 21. júlí, en Herjólfi verður sleppt aftur í hólfið seinni partinn þann dag. Frekari upplýsingar gefur Helgi Jón í síma 893-2233.

 
Sónarskošaš frį Herjólfi ( fyrra-gangmįl )
fimmtudagur, 15 jślķ 2010

Sónarskoðað verður frá Herjólfi í Flagbjarnarholti miðvikudaginn 21. júlí n.k kl. 14:00. Hryssueigendur eru vinsamlegast beðnir að vera tilbúnir að sækja hryssur þann dag, ef fengnar eru. Hringt verður í alla hryssueigendur og þeir látnir vita um niðurstöðu sónarskoðunar. Frekari upplýsingar gefur Helgi í síma 893-2233.

 
Hįtign frį Ragnheišarstöšum
sunnudagur, 20 jśnķ 2010

Hátíð og Krákur = Hátign. Nýverið kastaði Hátíð frá Úlfsstöðum fallegu merfolaldi við Krák frá Blesastöðum. Fyrir á Hátíð þrjú afkvæmi, þau Hákon, Hrafnar og Hörku. Krákur faðir Hátignar fékk 9,5 fyrir tölt og Hátíð móðir Hátignar fékk 10,0 þannig að væntingar til þeirra litlu eru þó nokkrar, ekki vantaði lúkkið á stelpuna þegar Glódís og Jónas eldri voru á ferðinni með kameruna þegar Hátign var dagsgömul.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 Nęsta > Endir >>

Śrslit 1 - 5 af 19



© 2010 Ragnheiðarstaðir - Hönnun Íslenskir Hestar - Allur réttur áskilinn.